Menningardagur Kjalarnessprófastsdæmis 31. október 
Menningardagur Kjalarnessprófastsdæmis verður haldinn á siðbótardaginn 31. október. Hugmyndin að baki deginum er að laða fólk til kirkju og leyfa því upplifa andrúmsloftið þar. Það er á valdi hvers safnaðar fyrir sig hvort og hvers konar dagskrá hann býður upp á. Meira »
Haustfundur prófasts með formönnum sóknarnefnda og gjaldkerum 7. september 
Haustfundur prófasts Kjaranessprófastsdæmis með formönnum sóknarnefnda og gjaldkerum verður haldinn í safnaðarheimili Víðistaðakirkju 7. september kl. 17-20. Á fundinum verður m.a. fjallað um fjármál safnaðanna. Meira »
Prédikunarseminar í Skálholti 10. - 12. október 
Prédikunarseminar Kjalarnessprófastsdæmis í Skálholti sem haldið hefur verið undanfarin ár verður að þessu sinni 10. - 12. október. Kjalarnessprófastsdæmi greiðir fyrir presta og djákna prófastsdæmisins. Meira »
Leiðarþing Kjalarnessprófastsdæmis 6. október í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju 
Leiðarþing Kjalarnessprófastsdæmis verður haldið 6. október kl. 17-21 í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Dagskráin verður send út síðar. Meira »
Fundur prófasts með prestum og djáknum 9. september kl. 9:30-12:30 
Árlegur haustfundur prófasts með prestum og djáknum verður haldinn í safnaðarheimili Lágafellssóknar fimmtudaginn 9. september kl. 9:30-12:30. Meira »
Vinnufundur um framtíð æskulýðsstarfs kirkjunnar 
Nefnd á vegum Kjalarsessprófastsdæmis hélt vinnufund í Víðistaðakirkju 3. júní til að undirbúa tillögu að menntabraut fyrir starfsfólk í æskulýðsstarfi Þjóðkirkjunnar. Fulltrúum guðfræðideildar , dr. Pétri Péturssyni, og menntasviðs Háskóla Íslands, dr. Gunnari J. Gunnarssyni, var boðið á fundinn ásamt fulltrúa djáknafélagsins, Magneu Sverrisdóttur. Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni, greindi frá tilhögun menntunar slíks starfsfólks lúthersku kirknanna í Þýskalandi og sr. Guðrún Karlsdóttir frá tilhögun hennar í Svíþjóð. Meira »
 
Næsta síða 
© 2007 Kjalarpr.is Kjalarnesprófastsdæmi • Þverholti 3 • 270 Mosfellsbær • Sími 566 7301 • Fax 566 7302 Uppsetning og hönnun Hýsir.is