U2-messan féll í góða jörð 
Ástjarnarsöfnuður bauð upp á U2-messu á uppstigningardag undir yfirskriftinni Gegn fátækt og ójöfnuði. Kirkjukórinn söng eingöngu U2-lög, sem sr. Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur í Digraneskirkju þýddi sérstaklega fyrir tilefnið, í útsetningu Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur tónlistarstjóra safnaðarins sem stjórnaði kórnum. Hljómsveit Hjartar lék undir en Regína Ósk og Svenni Þór voru gestasöngvarar. Prestarnir Bára Friðriksdóttir og Kjartan Jónsson leiddu stundina. Í lok guðsþjónustunnar gafst gestum kostur á að láta fé af hendi rakna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Guðsþjónustan tókst frábærlega vel og hátíðarsalur Haukaheimilisins var troðfullur. Margir urðu að standa.

Myndir á kirkjan.is, í Fjarðarpóstinum og á vef ÁstjarnarkirkjuMeira »
U2 messa í Haukaheimilinu í Hafnarfirði 13. maí kl. 20:00 
G e g n  f á t æ k t  o g  ó j ö f n u ð i 

Söfnuður Ástjarnarkirkju býður upp á U2 messu á uppstigningardag, 13. maí, kl. 20:00 í Haukaheimilinu í Hafnarfirði. 
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. 
Sérstakir gestasöngvarar verða Regína Ósk og Svenni Þór. 
Hljómsveit Hjartar Howser leikur undir, en hana skipa auk hans, Egill Rafnsson og Haraldur Þorsteinsson. 
Sr. Kjartan Jónsson og Sr. Bára Friðriksdóttir leiða stundina. Sjá nánar hér Meira »
Kirjkudagur Kálfatjarnarkirkju 9. maí kl. 14:00 
Árlegur Kirkjudagur Kálfatjarnarkirkju verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 9. maí kl. 14:00 með guðsþjónustu í kirkjunni en kirkjan á 117 ára vígsluafmæli 11. júní. 

Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, flytur hugvekju. 
Þau sem eiga þrjátíu, fjörutíu, og fimmtíu ára fermingarafmæli frá Kálfatjarnarkirkju eru sérstakir boðsgestir. 
Nýr hökull eftir Elínu Stefánsdóttur veflistarkonu verður tekinn í notkun. 
Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Franks Herlufsens. 
Prestur er sr. Kjartan Jónsson.  Meira »
Frjálslynd guðfræði í nýju ljósi, málþing 20. -21. maí 
Á málþingi Kjalarnessprófastsdæmis um frjálslynda þjóðkirkjuhefð sem haldið verður í Reykholti 20-21. maí 2010 verður prófessor emeritus Klaus-Peter Jörns gestur okkar og aðalfyrirlesari. Málþinginu er ætlað að skoða inntak þeirrar guðfræði sem liggur þjóðkirkjuhugsjóninni til grundvallar og jafnframt verður hugað að endurvakningu þessarar hefðar í samtímaguðfræði og kirkjulífi. Málþingið er öllum opið. Sjá dagkrá.
 Meira »
Vorfundur presta og djákna 4. maí 
Vorfundur prófasts með prestum og djáknum Kjalarnessprófastsdæmis verður haldinn í safnaðarheimili Hafnafjarðarkirkju, Strandbergi, 4. maí kl. 9 - 12. Vænst er þátttöku allra presta og djákna. Meira »
Formannafundur á vormisseri 5. maí 
Vorfundur prófasts Kjalarnessprófastsdæmis verður haldinn í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, Strandbergi, miðvikudaginn 5. maí kl. 17:30 - 21. Vænst er þátttöku allra formanna sóknarnefnda í prófastsdæminu. Meira »
 
Síðasta síða Næsta síða 
© 2007 Kjalarpr.is Kjalarnesprófastsdæmi • Þverholti 3 • 270 Mosfellsbær • Sími 566 7301 • Fax 566 7302 Uppsetning og hönnun Hýsir.is